Skip to content

Skilmálar

Verð

Calma.is áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.

Greiðsla og sendingarkostnaður

Hægt er að greiða með kredit- og debetkortum, American Express, Netgíró eða með millifærslu. 

Ef greitt er með Netgíró eða með kredit-, debetkortum í gegnum örugga greiðslusíðu er korthafi fluttur á viðeigandi vef þegar kemur að greiðslu. Greiðslur með kredit- og debetkortum eiga sér stað í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram. Calma.is tekur því hvorki við né geymir kortaupplýsingar.

Netgíró býður upp á kortalaus viðskipti á netinu. Til að greiða með Netgíró þarftu að vera með virkan aðgang, hægt er að nýskrá sig á vefsíðu Netgíró. Þegar þú greiðir með Netgíró þarftu aðeins að slá inn kennitölu og lykilorð og þá er pöntunin frágengin. Reikningur vegna kaupanna kemur í heimabankann með gjalddaga eftir 14 daga og er hann vaxtalaus. Einnig býður Netgíró upp á raðgreiðslur vegna vörukaupa og er mögulegt að dreifa því á 2-12 mánuði (fer eftir upphæð kaupanna). Lágmarkskaup fyrir raðgreiðslur er 15.000 kr.

Óski kaupandi eftir því að greiða með millifærslu skal leggja inn á reikning Memo Ísland ehf. innan 24 klst. frá kaupum og senda kvittun úr heimabanka á calma@calma.is.

Berist greiðsla ekki innan þess tíma er pöntunin ógild.

Reikningsnúmer Memo Ísland ehf. er 0526-26-560714, kt. 560714-1730.

Sendingakostnaður er reiknaður í greiðsluferli. Frí heimsending er á pöntunum ef verslað er fyrir 20.000 kr. eða meira nema annað komi fram í lýsingu á vöru. 

Sendingar

Afgreiðslutími pantana er allt að 4 virkir dagar. Ef vara er ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd sé þess óskað. Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang og velja réttan afhendingarmáta við pöntun. Vörur eru að jafnaði póstlagðar næsta virka dag eftir pöntun. Pantanir eru ekki afgreiddar fyrr en kaupandi hefur sannanlega innt greiðslu af hendi. Calma.is ber fulla ábyrgð á vöru þar til hún telst afhent kaupanda.

Sérpantanir

Þegar um sérpantanir er að ræða er afhendingartími frá 4 - 8 vikum. Farið er fram á 50% staðfestingargjald þegar varan er pöntuð og afgangurinn greiddur þegar varan er afhent. Ef sérpöntun er skilað fæst 50% staðfestingargjald ekki endurgreitt.

Skilafrestur

Skilaréttur á vörum er 14 dagar. skv. lögum nr. 46/2000. Óski viðskiptavinur eftir að skila vörum er honum bent að hafa samband í netfangið calma@calma.is og óska eftir endurgreiðslu á vörukaupum. Calma.is endurgreiðir vörukaup af vefsíðu félagsins við fyrsta tækifæri, en í síðasta lagi 30 dögum eftir að ósk um endurgreiðslu berst.

Hægt er að skila og skipta öllum vörum svo lengi sem þær eru ennþá í vöruúrvali okkar, en því aðeins ef varan er ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Kaupandi greiðir sjálfur flutningskostnað fyrir vörur sem er skipt/skilað. Ekki er tekið við skilavörum séu þær sendar með póstkröfu. Útsöluvörum fæst hvorki skilað né skipt.

Gölluð vara

Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á calma@calma.is með upplýsingum um galla vörunnar. Tilkynningarfrestur kaupanda vegna galla í vöru er tvö ár eða eftir atvikum fimm ár ef hluti er ætlaður verulega lengri endingatími en almennt gerist sbr. 2. mgr. 27. gr. laga um neytendakaup. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.

ÁbyrgðÁbyrgð

Áhætta af söluhlut flyst yfir til neytenda þegar hann hefur veitt honum viðtöku sbr. 14. gr. laga um neytendakaup nr. 48/2003. Þegar áhætta af hinni seldu vöru hefur flust yfir til kaupanda hefst skylda hans til þess að greiða kaupverðið þótt varan kunni eftir það að farast, skemmast eða rýrna ef um er að ræða atvik sem ekki má rekja með beinum hætti til seljanda. 

Fyrirvari

Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila skal bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Dugir það ekki verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á calma@calma.is.

 

Aðrar Upplýsingar Aðrar upplýsingar

Vefverslunin Calma.is er rekin af MEMO Ísland ehf.

Heimilsfang: Bæjarlind 7, 201 Kópavogi.

Kennitala: 560714-1730. VSK númer: 117822

Reikningsnúmer: 0526 - 26 - 560714

Félagið er skráð hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra.